26.8.2007
Forgangsröðun
Þetta kemur ekki á óvart, þ.e. ástandið í skólamálum í dag. Vantar mikið af leikskóla - og grunnskólakennurum í flest sveitarfélög. Grunn og leikskólastarfsmenn eru búnir að vara við þessu í langan tíma, þ.e. að þessi lágu laun munu ekki trekkja nógu marga að til að sinna þessum störfum.
Ástæðan fyrir því að þetta er sérstaklega vont í leikskólum er sú að það er einfaldlega teknir inn færri krakkar ef það fást ekki nægjanlega margir starfsmenn. Það er hins vegar ekki hægt í grunnskólum og því er eina lausnin þar að ráða inn ófaglært starfsfólk.
Það er okkur ekki til sóma að bjóða þessum stéttum ekki mannsæmandi laun fyrir þessi gífurlega mikilvægu störf. Það er kominn tími til að sveitstjórnarmenn setji þessi mál efst á listann og fargangsraði þannig rétt.
Leituðu til nágranna í neyð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.